Sólgleraugna drottningin

Í allri sólinni og góða veðrinu sem hefur heiðrað landann undanfarið hef ég verið bara "þokkalega" góð í frjókornaofnæminu. Alveg hreint ótrúlegt. Ég ætlaði varla að trúa þessu þegar að ég sá og heyrði í fólki í kringum mig sem var að drepast, hnerrandi og snýtandi sér.....og ég bara sjálf svona líka góð Wink

Nú svo dró fyrir sólu loksins og fór að rigna sem var nú orðin alger nauðsyn. Haldið þið að frúin hafi ekki byrjað "þá" að ofnæmast !!! Ég varð alveg kolvitlaus í augnkláða. Þrotlaus viðbjóðslegur kláði og sviði sem ekki er hægt að standast að nudda. Ég er búin að nudda nánast alla húð í burtu í kringum augun.

Núna er frúin eins og þorskur á þurru landi með augu á stærð við lítið óþroskað krækiber. Bólgan hylur hin fögru augu og "nánast" lokar þeim alveg. Bólgan undir augunum er eins og notaðir tepokar með auka-hrukku-ívafi sem lítur út eins og gamalt þvottabretti.

Aumingja Biggi minn að þurfa að vakna við hliðina á "þessu" Frown

Nei, hún er ekki glæsileg hún Bryndís Halldóra í dag. Woundering Fer ekki út úr húsi nema vopnuð hinum dekkstu sólgleraugum af stæðstu gerð sem hylur hálft andlitið, en það er þá líka bara af illri nauðsyn að ég fari út. Algerlega einungis í bráðnauðsynlegri neyð.

Ég þarf t.d. að fara út í dag til að sækja ný lyf í augun á mér og það er eins gott að það verði ekki margir á vegi mínum, því ég...(eins og þeir sem þekkja mig vita)....sé ekki vel og þarf gleraugu eða linsur við aksturinn, en nú get ég ekki látið sjá mig með annað en sólgleraugu og verð því að keyra í apótekið eftir minni.

Ef þið sjáið dökkhærða konu á steingráum Avensis með sólgleraugu á stærð við tvær steikarpönnur...þá endilega keyrið út í kant hið snarasta til að verða ekki fyrir henni.

Hún er nefnilega sjónlaus með öllu. Pinch


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Steindórsdóttir

Elsku kerlingin mín, ég veit alveg hvernig þér líður. Sérstaklega er maður ekki morgunfagur, ég get ekki litið í spegil í klukkutíma Annars góða ferð í apótekið Binna mín veturinn kemur aftur og við verðum jafn fagrar og áður

Anna Steindórsdóttir, 27.7.2007 kl. 11:56

2 identicon

Heyrðu frænka drífðu þig að fá sterasprautu í rassinn eins og ég!!!! Allt annað líf  laus við ofnæmið!! Biðjum að heilsa  Beggi og Co.

Beggi (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Velkomin á spjallið mitt...

Höfundur

Bryndís Halldóra Jónsdóttir
Bryndís Halldóra Jónsdóttir

Eiginkona, móðir, amma.....

...en alltaf "29 ára"  c",) 

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Fallegi litli Snorrinn minn
  • Bryndísin sjálf
  • Bjarki Freyr
  • Fannar
  • Bjarki Freyr
  • Melkorka María

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband