11.2.2008 | 15:35
Hrekkjusvín
Þeir sem þekkja manninn minn vita það með vissu að hann er með afbrigðum hrekkjóttur.
Oftar en ekki, hefur betri helmingur hans orðið hvað oftast orðið fyrir þessum hrekkjum hans.
Ég læt hér flakka einn hrekk sem gerðist þegar að við bjuggum í Ártúnsholtinu.
*************************************************
Ekkert þótti mér betra en rauður ópal. Ég gat gúffað í mig fleiri fleiri pökkum á dag, ef því var að skipta. Ég var svo sólgin í rauðan ópal að ég gat stundum hvolft hálfum pakka upp í mig í einu og gerði það bara þannig að ég opnaði pakkann og hvolfdi upp í mig góðgætinu og maulaði.
Ég ætla að taka það fram áður en sagan hefst, að ég hef séð illa frá 14 ára aldri og nota oftast gleraugu, þó ekki alltaf. (og ekki í þetta sinn)
Nú...eitt sinn kemur minn elskulegi eiginmaður heim af fótboltaæfingu, sem var daglegur viðburður í þá daga eftir vinnu.
Hann heilsar krakkakrílunum sem hann átti þarna úti á götu og kemur svo inn til spúsu sinnar. Hengir upp jakkann sinn, kyssir sína beint á snúðinn og réttir henni...
.......rauðan ópal !
Æ...en hvað þú ert sætur ástin mín, segi ég. Kaupir þú bara rauðan ópal handa mér bara si svona án þess að ég biðji þig um það ? ha ?
Já, ég kom við í sjoppunni að kaupa mér að drekka og ákvað að kaupa handa þér ópal elskan í leiðinni af því þér finnst hann svo góður.
Svo fer hann að sinna öðru. (en fylgist með mér í laumi)
Fíkillinn opnar pakkan, sér samt að það er búið að opna hann, en reiknar með að viðhengið hafi fengið sér smakk áður en gefið var, en hugsa svo ekki meira út í það.
Pakkanum er hvolft að venju upp í gímaldið og byrjað að bruða...umm...
**?????=ÖÖ??'_$$%$##%&%&%/&//** piffff...skyrp.......hvur djöfullinn er þetta ?
Ég skyrpti innihaldi munnsins í lófann á mér hið snarasta og horfði forviða á það sem við mér blasti.
Hvað haldið þið að maðurinn hafi verið að dúlla sér við þegar að hann var að heilsa upp á krakkaormana sína úti á plani ??? ef hann var þá að heilsa upp á þá.....
HANN VAR AÐ TÝNA MÖL Í ÓPALPAKKA !!! JÁ, MÖL !!!
Það gat ekki verið að hann væri svona elskulegur nema að það væri hrekkur á bak við elskulegheitin.
Hann hafði fundið tóman ópalpakka í bílnum og ákvað að smella smá möl í hann handa sinni og sjá hvað gerðist. (þvílíkt hugmyndaflug)
Það skal tekið fram að hann andaðist næstum því það skiptið úr hlátri og hann hlær ennþá af svipnum á mér...yfir gleðinni...gleraugnalausri...full trausts á eiginmanninum, skella í mig rauða ópalnum.
Svipnum þegar að ég finn harða steinana gæla harkalega við tennur mínar og skyrpa þeim með hraði í lófann...og drápssvipnum sem hann fékk þegar að frúin uppgötvar að þetta var möl .... MÖL....
Ég hef aldrei treyst honum síðan þegar hann gefur mér nammi, sérstaklega ekki ef ég er gleraugnalaus.
Það þarf vart að taka það fram að hann var tekinn og laminn og ég réði við hann því hann var svo máttlaus af hlátri.
Um bloggið
Velkomin á spjallið mitt...
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er svo gott að vera laus við að hrekkja fólk hvarlar ekki að manni
Brynjar Svansson, 20.2.2008 kl. 17:11
Hahahaha....já það er nú gott Brynjar minn að þú og Óðinn bróðir
þinn eruð lausir við alla hrekki hahahaha....
Bryndís Halldóra Jónsdóttir, 21.2.2008 kl. 08:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.