25.10.2007 | 23:17
Ég, Lára og Logi Bergmann
Ég sá í blaði um daginn nokkrar samanteknar spurningar sem lagðar höfðu verið fyrir Loga Bergmann fréttamann.
Þegar ég hafði lesið dágóða stund og kom að því þar sem hann segist ætíð lenda í biðröðum sem að haggist ekki hætis hót og séu algerlega pikkstopp, hann væri svona biðraða-stoppari ...þá staldraði ég við þar...flissaði með sjálfri mér og hugsaði. Jahá...við Logi eigum þá fleira sameiginlegt en bara það að vera fyrstu og elstu kúnnarnir hennar Láru vinkonu minnar Stephensen.
Það er segin saga, að þegar ég fer í verslun, þá reyni ég alltaf að velja stystu röðina. (það gera það eflaust flestir) Óralangar biðraðir í kringum mig á báða bóga....en "ég" í þeirri stystu.
Nú...ég skima í kringum mig og sé að þessar löngu biðraðir ganga miklu, miklu hraðar en mín, sem virðist ekki hreyfast. Þegar að ég kanna málið nánar, er það iðulega þannig að strimillinn er búinn í kassanum og þá þarf að setja nýjan. (tekur tíma og líka á óþolinmæði mína)
Eða...afgreiðsludaman finnur ekki verðið á vörunni og þarf að hlaupa inn í 2000 fm búðina til að finna verðið.
Eða þá...að debetkortið hjá kúnnanum er ekki að virka og reynt er að renna því hundrað og fimmtíu sinnum í gegnum posann...án árangurs því segulröndin er algerlega búin, og afgreiðsludaman fattar það ekki fyrr en eftir korter eða svo að stimpla inn númerið á kortinu.
Seinasta biðin mín var þannig, að afgreiðsludaman þurfti að hlaupa út á eftir kúnnanum...alla leið út á mitt bílaplan þar sem að hann hafði gleymt einni vörunni. Og ég beið í biðröð á meðan ! Ohhhhh.....this is my life !!!
Og annað...ef ég versla mér einhvern hlut. T.d....lampa, rúm, ísskáp, frystikistu, bíl eða guð má vita hvað, þá er sá hlutur yfirleitt með leyndan galla..sem fattast þegar heim er komið, eða það er bilað og tækið virkar ekki.
Nú eða ef ég versla hluti í einingum sem á að setja saman, þá get ég lofað á mér handleggnum...jafnvel báðum að það vantar aðal hlutinn í kassann. Ég er vel þekkt fyrir þessa seinheppni mína. Einu sinni keypti ég mér skó, rétt fyrir klukkan 6 á föstudegi, var að fara að djamma, keyri heim til mín, sem er nota bene í óæðri enda Grafarvogs (það er svo langt) og uppgötva mér til skelfingar að þjófavörnin er enn á skónum. Brilliant !!! Flott að fara á tjúttið með þjófavörnina á skónum !!!
Ég þurfti að gera mér aðra ferð, niður í bæ eftir símtal við konuna í skóbúðinni og láta fjarlægja þennan óæskilega hlut af skónum mínum. En til hvers að hafa þjófavörn sem að er ekki að virka ?Þarna sjáið þið hvað ég er dásamlega heppin. Þetta getur BARA komið fyrir MIG !!!
Fjölskyldan hefur oft og einatt átt skemmtilegar hláturstundir saman yfir seinheppni minni. (mér til lítillar gleði eða skemmtunnar)
Til að skilgreina Láru Stephensen klippara, fyrir þeim sem ekki þekkja deili á henni, þá höfum við Lára verið vinkonur í u.þ.b. 3 áratugi. Ég var sérstakt tilraunadýr vinkonu minnar á fyrstu náms árum hennar, hvort sem var í litun eða klippingu.
Eitt sinn sem oftar setti hún í mig þessar líka svakalega flottu strípur. Ég sat dauðadæmd á fjórfættum eldhúskolli í Auðbrekkunni þar sem hún bjó í foreldrahúsum og beið þess sem verða vildi.
Lára var búin að pikka nánast alla hárflóruna upp úr þessari dásemdar strípuhettu sem huldi höfuð mitt. Á hárréttan tíma (að hennar mati) var mér ýtt inn á bað og látin bogra yfir baðkarið og hárið þvegið og skolað.
Útkoman var glæsileg !!! Binna....sú dökkhærða var orðin "appelsínugulhærð" !!! Strípurnar upp við haus voru gular...endarnir niður við axlir voru appelsínugulir !!!
Redding var gerð í snarhasti og Binna var bara klippt stutt. Hárið fauk og eftir sat tilraunadýr Láru, eins mikið "blond" og frönsk mella á fjórða áratugnum. Ég hef aldrei á minni lífsins æfi verið eins ljóshærð og þá eða öllu heldur gulhærð. Hér sjáið þið mynd: http://www.123.is/Noja/albums/-35448988/Jpg/071.jpg
Flott ha ? Með gulan hjálm á höfði og dökk undirhárin HAHAHAHA.... FLOTTUST !!!
En alla vega þá eigum við Logi það sameiginlegt, þó við þekkjumst ekki neitt, að vera sömu biðraða- stoppararnir og líka fyrstu og elstu kúnnarnir hennar Láru Steph. Hvort Lára gerði tilraunir á Loga í denn er mér ekki kunnugt um
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2007 | 11:34
Friðarsúla Lennons og Yoko
Jæja...þá var friðarsúlan tendruð í gærkvöldi með pomp og prakt.
Ég stóð spennt í eldhússkálanum mínum og beið eftir ljósi. Hlustaði á sjónvarpsútsendinguna og stóð við gluggann og beið spennt. Og viti menn !!! Það varð ljós.
Mikið var það fallegt. Ég er í stúkusæti hvað ljósasúluna varðar. Ég get setið og borðað matinn minn og notið þess um leið að horfa á friðarsúlu Lennons og Yoko. Ekki amalegt það
Gaman að sjá Sean hvað hann er líkur pabba sínum þó hann sé aðeins úfnari en hann var. Hann tjaldar svo miklu hári strákurinn, bæði í andliti og á höfði En líkur er hann pabba sínum það má nú segja....og Sean gengur alveg nákvæmlega eins og hann. Virðist hafa sömu limaburði og John. Gaman af þessu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.10.2007 | 10:53
Litir haustsins
Ég fór á Þingvöll um helgina og myndaði þar yndislega liti haustsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.9.2007 | 14:12
50 árum seinna...
Fengu þau sér gott að borða og fóru svo upp í rúm til að endurupplifa brúðkaupsnóttina.
Eitthvað fannst þeim gamli vinurinn vera slappur og linur, svo hann laumaðist afsíðis og batt við hann reglustiku.
Fór hann við svo búið upp í rúm til sinnar gömlu og sinnti sínu hlutverki og var konan hæstánægð með gamla sinn.
Daginn eftir synti annar eggjastokkurinn til hins og sagði: "Já, margir hafa nú komið við hér um dagana en aldrei hafa þeir fyrr komið á líkbörum!"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2007 | 15:00
Fátækt eða ríkidæmi ?
Dag nokkurn tók mjög efnaður maður son sinn með sér í ferð út á land í þeim tilgangi að sýna honum hvernig fátækt fólk býr.
Þeir dvöldu tvo daga og nætur á sveitabýli sem myndi teljast fátæklegt.
Á leiðinni til baka spurði faðirinn son sinn hvernig honum hafi þótt ferðin.
"Hún var frábær Pabbi."
"Sástu hvernig fátækt fólk býr?" spurði faðirinn.
"Ó já," sagði sonurinn.
"Jæja, segðu mér, hvað lærðir þú af þessari ferð?" spurði faðirinn.
Sonurinn svaraði:"Ég sá að við eigum bara einn hund en þau eiga fjóra.Við eigum sundlaug sem nær útí miðjan garð en þau eiga læk sem engan enda tekur.
Við erum með innflutt ljósker í garðinum en þau hafa milljón stjörnur á næturnar.
Veröndin okkar nær alveg að framgarðinum en þau hafa allan sjóndeildarhringinn.
Við eigum smá blett til að búa á en þau eiga akra sem ná eins langt og augað eygir.
Við höfum þjónustufólk sem þjónar okkur en þau þjóna öðrum. Við þurfum að kaupa okkar mat en þau rækta sinn.
Við erum með háa girðingu til að verja okkur en þau eru umkringd vinum sem verja þau. "
Faðir drengsins var orðlaus.
Þá bætti sonurinn við:"Takk Pabbi, fyrir að sýna mér hve fátæk VIÐ erum."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Velkomin á spjallið mitt...
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar