Færsluflokkur: Bloggar

Blogg-sumarfrí

Bara rétt að reka hér inn nefið og láta ykkur vita að ég er ekki dauð.

Er bara í smá blogg-sumarfríi Joyful Ég læt örugglega heyra frá mér....ég kem aftur.

Ég kem alltaf aftur !!!! W00t


Sólgleraugna drottningin

Í allri sólinni og góða veðrinu sem hefur heiðrað landann undanfarið hef ég verið bara "þokkalega" góð í frjókornaofnæminu. Alveg hreint ótrúlegt. Ég ætlaði varla að trúa þessu þegar að ég sá og heyrði í fólki í kringum mig sem var að drepast, hnerrandi og snýtandi sér.....og ég bara sjálf svona líka góð Wink

Nú svo dró fyrir sólu loksins og fór að rigna sem var nú orðin alger nauðsyn. Haldið þið að frúin hafi ekki byrjað "þá" að ofnæmast !!! Ég varð alveg kolvitlaus í augnkláða. Þrotlaus viðbjóðslegur kláði og sviði sem ekki er hægt að standast að nudda. Ég er búin að nudda nánast alla húð í burtu í kringum augun.

Núna er frúin eins og þorskur á þurru landi með augu á stærð við lítið óþroskað krækiber. Bólgan hylur hin fögru augu og "nánast" lokar þeim alveg. Bólgan undir augunum er eins og notaðir tepokar með auka-hrukku-ívafi sem lítur út eins og gamalt þvottabretti.

Aumingja Biggi minn að þurfa að vakna við hliðina á "þessu" Frown

Nei, hún er ekki glæsileg hún Bryndís Halldóra í dag. Woundering Fer ekki út úr húsi nema vopnuð hinum dekkstu sólgleraugum af stæðstu gerð sem hylur hálft andlitið, en það er þá líka bara af illri nauðsyn að ég fari út. Algerlega einungis í bráðnauðsynlegri neyð.

Ég þarf t.d. að fara út í dag til að sækja ný lyf í augun á mér og það er eins gott að það verði ekki margir á vegi mínum, því ég...(eins og þeir sem þekkja mig vita)....sé ekki vel og þarf gleraugu eða linsur við aksturinn, en nú get ég ekki látið sjá mig með annað en sólgleraugu og verð því að keyra í apótekið eftir minni.

Ef þið sjáið dökkhærða konu á steingráum Avensis með sólgleraugu á stærð við tvær steikarpönnur...þá endilega keyrið út í kant hið snarasta til að verða ekki fyrir henni.

Hún er nefnilega sjónlaus með öllu. Pinch


Glötuð "ég" !

Ég er alveg glötuð í þessu bloggi hérna. Ég hef ekki látið í mér heyra í óratíma, en alla vega þá er ég á lífi. Blush

Hlakka mikið til að hitta frændgarðinn á morgun hjá Brynjari frænda á Hellu.

Við Blomsterbergarnir brunum austur með fullan bíl af Biggakjöti sem við  svo gúffum  í okkur saman seinnipartinn...það verður ljúft. Ég legg til að hann Nói "yfirgrillari" verði látinn standa við grillið með töngina. Hann er snillingur að grilla drengurinn sá.

En alla vega...þá hlakka ég til að hitta ykkur á morgun og eiga með ykkur góðan dag. Wink


Pollamót Þórs

Nú er ein skemmtilegasta helgi sumarsins liðin og við komin heim eftir ævintýri helgarinnar.

Vorum á Pollamótinu á Akureyri og það var alveg rosalega gaman. Það er ALLTAF gaman á Pollamóti !!!! Við erum búin að hlæja alla helgina út í gegn.

Strákarnir urðu í 3 sæti í Lávarðadeildinni og fóru því heim með bronsið. Ekki slakt það.

Set hér inn mynd af mesta sprellara sem til er....Nuddaranum mikla.

Hann var alltaf svona alla helgina eins og hann er hér á myndinni. LoL 

Gleðigjafi mikill !!!

Nuddarinn mikli-Óðinn Svansson


Steik og aftur steik

Ég er eins og brunninn tómatur eftir daginn. Hvernig er með ykkur ? Pinch

Tár í tómið

Í tugi ára hefur þetta lag og þessi texti verið mér hugleikinn. Ég tala um tugi, því ég held að ég hafi verið unglingur þegar að Ríó Tríó söng þetta lag inn á plötu. Maður er nú orðinn þokkalega gamall... Whistling 

Í gær var ung stúlka jörðuð og var þessi texti í minningargrein frá systir hennar. Hann á svo sannarlega við í því tilfelli ásamt hundruðum annara sem hafa fallið fyrir tilstyllan eiturlyfjanna. Flest eigum við einhvern nákominn eða þekkjum til sem á við þennan vanda að etja. 

Ég held að það veiti ekki af og væri öllum hollt, að hlusta aðeins á orð pabbans sem skrifaði til þjóðarinnar í gær til að reyna með veikum mætti að hrista upp í þessu þjóðfélagi okkar. Hvað er brýnna en að reyna að sporna við þessum vágesti sem ríður yfir unga fólkið okkar ? Hvernig endar þetta ef við höldum áfram að ganga alltaf veginn með bundið fyrir augun ?

Horfumst í augu við meinið og reynum að standa saman í þessari baráttu. Gætum að því, að næst gæti þetta verið mitt barn.....eða þitt.

 

Tár í tómið

Bárur þér fleygja um bölsins haf.
Brostið hvert skip sem þér lífið gaf
uns eiturbylgjan við auðnarland.
Að endingu grefur þitt lík í sand.

Við áttum drauma og ást og trú.
En eitthvað brást og þú reikar nú
um villustræti um voðans borg.
Það er verra en dauði og þyngra en sorg.

Og öll mín tár, til einskins þau í tómið renna.
Mín ör og sár, til einskins svíða þau og brenna.
En verst er þó að vita'ei hverju'er um að kenna.

Þeir hirða þig stundum og hringja í mig
og heimta'að ég komi að sækja þig.
Þú ert örvita af kvölum og allt mitt þor.
Mín orka og líf fer í þessi spor.

Þú grætur oft en ég get svo fátt.
Ég gef þér allt, það var samt of smátt.
Eitrið þig bindur í báða skó
og blóð þitt hrópar, fær aldrei nóg

Og öll mín tár, til einskins þau í tómið renna.
Mín ör og sár, til einskins svíða þau og brenna.
En verst er þó að vita'ei hverju'er um að kenna.

Á sjúkrahús fórst og send varst heim.
Þeir sögðu þig fríska við trúðum þeim.
Þú hlóst og söngst en þú hlærð ei meir.
Það hryggir ei neitt eins og von sem deyr.

Bárur þér fleygja um bölsins haf.
Brostið hvert skip sem þér lífið gaf
uns eiturbylgjan við auðnarland.
Að endingu grefur þitt lík í sand.

Og öll mín tár, til einskins þau í tómið renna.
Mín ör og sár, til einskins svíða þau og brenna.
En verst er þó að vita'ei hverju'er um að kenna.


                                          Jónas Friðrik


Einn góður !

Ítalskur ferðamaður sem var staddur í Madrid á Spáni,

fékk skyndilega þá hugdettu að skella sé á nautaat sem átti að vera í nágreninu seinna um daginn.

Hann skemmti sér konunglega og dáðist að því við vin sinn hvað nautabaninn fór létt með að stúta nautinu.

 

Um kvöldmatarleytið fer hann svo inn á nálægðan veitingastað og biður þjóninn um rétt dagsins og vín hússins.

 

Hann hafði ekki beðið lengi þegar þjónninn kemur með veitingarnar.

Þegar hann þakkar þjóninum fyrir frábæran mat, spyr hann þjóninn að því hvað þessi indæli réttur heiti.

 

"Hann heitir ojabjakk" svarar þjónninn um hæl.

 

Hvaða hráefni er notað í svona góðan mat spyr Ítalinn aftur. Það eru eistu nautsins sem féll í hringnum í dag.

Ítalinn sætti sig við þetta og þakkaði fyrir sig og kvaddi.

 

Daginn eftir kemur Ítalinn aftur og pantar sama rétt og kvöldið áður.

Þegar hann hefur lokið við matinn, spyr hann þjóninn af hverju skammturinn hafi verið svona lítill,

því hann hafi verið svo vel útilátinn í gær.

 

"Það er út af því að nautið tapar ekki alltaf" svaraði þjónninn. LoL


Þrá eftir austfirsku fjallalofti.....

Ég, borgarpaddan sem fædd er og uppalin á malbikinu er komin með sjúklega þrá eftir að komast út á land. Þetta er krónískur sjúkdómur sem kemur reglulega upp hjá mér, ár hvert.

Þó ég sé Reykjavíkurmær þá fæ ég alltaf fráhvörf eftir sveitinni þegar fer að sumra.  Nú styttist í Akureyrarferðina mina sem verður í júlí og svo langar mig óhemju mikið til að fara á frönsku dagana á Fáskrúðsfirði seinustu helgina í júlí. Mig skortir bara húsnæði þar. Það er ekki um auðugan garð að gresja þegar að ættingjarnir eru nánast allir fluttir þaðan.

Bara að komast í annað umhverfi en hana Reykjavík....þó ég elski hana alveg út af lífinu, þá bara verð ég að fá að breyta til. Það nærir sálina mína og ég hleð batteríin til fulls í sveitinni. Akureyri er kannski ekki sveit...en...annað umhverfi sem er svo gaman að heimsækja.

Ég vona að mér verði eitthvað ágengt í húsnæðismálum varðandi frönsku dagana. Ef það gengur upp verð ég ekki lengi að pakka saman og keyra í fjörðinn minn fallega, í ausfirska fjallaloftið sem nærir mig betur en nokkuð annað.


Nýtt lag...hlustið

           

Nýtt lag er komið í spilun með Snorra bróðir.

Þetta er gullfallegt lag og texti eftir Magnús Þór Sigmundsson og

heitir það...  Sálmur um ást


« Fyrri síða

Um bloggið

Velkomin á spjallið mitt...

Höfundur

Bryndís Halldóra Jónsdóttir
Bryndís Halldóra Jónsdóttir

Eiginkona, móðir, amma.....

...en alltaf "29 ára"  c",) 

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Fallegi litli Snorrinn minn
  • Bryndísin sjálf
  • Bjarki Freyr
  • Fannar
  • Bjarki Freyr
  • Melkorka María

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband