Hvað er að Mr. Morthens ?

Ég las í mogganum í morgun að Bubbi væri svo yfir sig hrifinn af Eyþóri Inga sem að sigraði í bandinu hans Bubba, að hann hefði bara ekki heyrt annað eins í 28 ár. 

Í sko heil 28 ár !!!

Hann segir Eyþór betri en sjálfan Björgvin Halldórsson gullbarka íslendinga og Pál Rósinkrans sem má segja að sé þá með silfurbarkann.

Nú hef ég hlustað á Eyþór Inga syngja og já, hann er góður strákurinn. En hann er rétt að byrja sinn söngferil, enda bara 18 ára og á fullt eftir að læra enn. Hann á t.d. eftir að læra að hætta að syngja í gegnum nefið sem mér finnst hann gera of mikið af.

Að setja hann ofar mönnum eins og Bó Hall og Palla Rós.  finnst mér lýsa vanþekkingu.

Að setja óslípaðan demant við hlið þess sem að er löngu slípaður og glansar svo að sker í augu er ekki sambærilegt. Sá óslípaði á eftir að slípast til með tímanum. Ekki satt ?

Það er hárrétt, Eyþór er góður. En common....plís, ekki setja hann ofar þeim mönnum sem eru þaulreyndir gullbarkar með áratuga reynslu í söng. Fyrir utan það, þá er Eyþóri bara ekki hollt að vera settur á þann stall.

Leyfum drengnum að sýna sig betur og sjáum hvað setur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Steindórsdóttir

Binna mín, Bubbi líkti einmitt Eyþóri við Pál Rósinkrans, sagðist ekki hafa heyrt annað eins efni síðan Páll kom fram. Er sammála honum, það að drengurinn er 18. ára segir meira en segja þarf. Röddin hans og raddsvið er ótrúlegt, miklu betra en Björgvin hefur nokkru sinni haft með fullri virðingu fyrir honum.

Anna Steindórsdóttir, 22.4.2008 kl. 14:03

2 Smámynd: Bryndís Halldóra Jónsdóttir

Það eru nú ekki nein 28 ár síðan að Palli hóf sinn feril.

Bubbi sagðist ekki hafa heyrt annað eins í 28 ár  Það er nú svona upp og niður hvað Bubbi minn segir stundum.

Bryndís Halldóra Jónsdóttir, 22.4.2008 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Velkomin á spjallið mitt...

Höfundur

Bryndís Halldóra Jónsdóttir
Bryndís Halldóra Jónsdóttir

Eiginkona, móðir, amma.....

...en alltaf "29 ára"  c",) 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Fallegi litli Snorrinn minn
  • Bryndísin sjálf
  • Bjarki Freyr
  • Fannar
  • Bjarki Freyr
  • Melkorka María

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 720

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband